Innlent

Vill fund vegna nafnlauss bréfs tengdu Baugsmáli

MYND/E.Ól

Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, hefur óskað eftir fundi með verjendum og dómara vegna bréfs frá nafnlausum aðila sem sent hefur verið til margra sem að málinu koma.

Þar er því haldið fram að dómarar í Hæstarétti hafi sýknað menn og vísað frá ákæruliðum í Baugsmálinu til þess að hefna sín á Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi seðlabanklastjóra, fyrir að hafa beitt sér fyrir því að þeir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson hafi verið skipaðir hæstaréttardómarar en töluverður styrr stór um þær ákvarðanir á sínum tíma.

Haft er eftir Eiriíki Tómassyni lagaprófessor í Fréttablaðinu að bréfið geti ekki verið skrifað af öðrum en lögfræðingi eða manni sem hafi heimildarmann úr hópi lögfræðinga.

Yfirheyrslur yfir Jóni Gerald Sullenberger héldu áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en búist er við að þeim ljúki síðar í dag. Til umræðu hefur verið meintur fjárdráttur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar í tengslum við rekstur skemmtibátsins Thee Viking. Jón Gerald segir að hann og Baugsmenn hafi átt bátinn saman og því sé rangt sem Jón Ásgeir og Tryggvi haldi fram að Jóni Gerald hafi verið lánað fé til að reka bátinn.

Bréfið í heild er í PDF skjali hér að neðan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×