Tónlist

Deep purple og Uriah Heep á Íslandi

Frá tónleikum Deep Purple á Íslandi árið 2004
Frá tónleikum Deep Purple á Íslandi árið 2004

DEEP PURPLE hefur selt fleiri tónleikamiða hérlendis en nokkur önnur hljómsveit og þegar önnur goðsagnakennd rokksveit á borð við URIAH HEEP bætist við dagskrána er öruggt að slegist verður um hvern miða.

Það að tvær jafn stórar sveitir spili saman á tónleikum á sér varla hliðstæðu hérlendis og nokkuð ljóst að rokkunnendur eiga ógleymanlegt kvöld í vændum.

Miðasala á sameiginlega stórtónleika DEEP PURPLE og URIAH HEEP hefst fimmtudaginn 1. mars kl. 10:00 á www.midi.is, í verslunum Skífunnar í Reykjavík og í verslunum BT í Hafnarfirði, á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Annars vegar verður selt í númeraða stúku og hins vegar stæði og eru verðin sem hér segir:

Stæði: 4.900 kr.

Númeruð stúka: 9.900

Aðeins eru um 1.000 númeruð stúkusæti í boði og miðagjald er innifalið í báðum verðum.

Tónleikarnir fara fram hvítasunnuhelgina, nánar tiltekið sunnudaginn 27. maí í Laugardalshöllinni og er frídagur daginn eftir tónleikana.

DEEP PURPLE er ein af allra stærstu rokksveitum sögunnar og ein þeirra sveita sem skópu það mót sem rokktónlist hefur sprottið úr síðastliðna þrjá áratugi. Tónlist Deep Purple þarf varla að kynna fyrir nokkrum manni en tónlistararfleið þeirra inniheldur nokkur vinsælustu lög allra tíma og má þar nefna slagara á borð við "Smoke on the Water", "Hush", "Highway Star" og "The Women from Tokyo" .

Deep Purple er í dag skipuð þeim Ian Gillan (söngur), Roger Glover (bassi), Ian Paice (trommur), Don Airey (hljómborð) og Steve Morse (gítar). Þrír fyrstnefndu eru upprunalegir meðlimir en Airey og Morse slógust í hópinn fyrir nokkrum árum. Steve Morse hefur meðal annars verið valinn gítarleikari ársins fimm sinnum af tímaritinu Guitar Player.

Þessi liðsskipan hefur verið á fleygiferð um heiminn síðastliðin fimm ár og hefur leikið við góðan orðstír. Þessi sveit gaf síðast út plötuna RAPTURE OF THE DEEP árið 2005 og fékk platan það góða dóma að sumir kölluðu hana eina bestu plötu sveitarinnar á 37 ára ferli.

Ennfremur eru þeir að fá gríðarlega jákvæða dóma fyrir frammistöðu sína á tónleikum um þessar mundir og ljóst að þessi goðsagnakennda sveit er í fullu fjöri og rúmlega það.

Hljómsveitarmeðlimir eru miklir Íslandsvinir eins og alkunna er. Þeir spiluðu hér í fyrsta skipti 18. júní 1971 og troðfylltu þá Höllina.

Þeir endurtóku leikinn 33 árum seinna, 23. og 24. júní árið 2004 og troðfylltu Höllina þá tvisvar. Þeir eiga Íslandsmet í miðasölu nú þegar með um 15.000 miða selda í heildina og munu með sinni þriðju heimsókn bæta um betur. Sjá: http://www.deep-purple.com/



URIAH HEEP var stofnuð árið 1969 og skírð í höfuðið á karakter í bókinni David Copperfield eftir Charles Dickens. Þeir hafa verið kallaðir "The Beach Boys of heavy metal" vegna þess hversu melódísk lögin þeirra eru og vegna vörumerkisins þeirra; margradda bakradda.

Áhrifin í tónlist þeirra koma þó víða að, þar á meðal frá þungarokki, djassi og á köflum jafnvel frá kántríi.

Meðal stærstu smella þeirra má nefna lög á borð við "Easy Livin'", "Sweet Lorraine" og "Stealin'" en allt eru þetta slagarar sem hafa fyrir löngu síðan skipað sér á bekk með helstu hornsteinum rokksögunnar. Hljómsveitin er í dag skipuð þeim Mick Box (gítar/ söngur), Lee Kerslake (trommur/söngur), Trevor Bolder (bassi/söngur), Bernie Shaw (söngur) og Phil Lanzon (hljómborð/söngur).

Nýjasta stúdíó plata sveitarinnar er SONIC ORIGAMI frá 1998 og hlaut hún góðar viðtökur. Þeir hafa verið griðarlega duglegir við að túra síðastliðin ár og gefa út hljómplötur með upptökum frá hinum ýmsu tónleikum víða um heim og má þar nefna t.d. Between Two Worlds frá

2005 og Magic Night frá 2004. Á árinu 2006 komu ennfremur út tvær glæsilegar safnútgáfur; Easy Livin': Singles A's & B's og Very Best of Uriah Heep. Það er því ljóst að sveitin er í toppformi og má búast við þeim í miklum gír í Höllinni þann 27. maí.

Uriah Heep heimsótti Ísland árið 1988 og kom þá fram á Hótel Íslandi.

Að sögn margra viðstaddra voru hérna á ferðinni magnaðir og mjög eftirminnilegir tónleikar.

Sjá: http://www.uriah-heep.com/






Fleiri fréttir

Sjá meira


×