Innlent

Fíkniefnin voru í bílskottinu

Rúmlega tvítugur Íslendingur sem situr í gæsluvarðhaldi í Færeyjum vegna Pólstjörnumálsins svokallaða var gómaður með tæp tvö kíló af fíkniefnum í farangursgeymslu bíls síns.

Lögreglan í Þórshöfn hefur að undanförnu rannsakað þátt mannsins í stóra smyglmálinu þegar reynt var að smygla 40 kílóum af amfetamíni, e-töflum og e-töfludufti til landsins í skútu. Skútan hafði viðdvöl í Færeyjum. Leikur grunur á að kílóin tvö hafi verið skilin eftir hjá manninum, sem hefur búið í Færeyjum að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×