Innlent

Staðfestir fyrra mat

Frá stjórnarfundi Landsvirkjunar í dag
Frá stjórnarfundi Landsvirkjunar í dag MYND/lv.is

Á stjórnarfundi Landsvirkjunar sem lauk fyrr í dag var endurskoðað áhættumat Kárahnjúkavirkjunar til umfjöllunar. Fyrir fundinum lá ennfremur áskorun stjórnar og þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um að fresta fyrirhugaðri fyllingu Hálslóns, meðan nýtt áhættumat sé unnið.

Stjórnin samþykkti eftirfarandi bókun. Einn stjórnarmaður sat hjá og einn greiddi atkvæði gegn bókuninni:

Vegna umræðna undanfarið um öryggi Kárahnjúkastíflu vill stjórn Landsvirkjunar taka fram að hún hefur vitaskuld fylgst með öllum skrefum í hönnun og byggingu mannvirkja virkjunarinnar. Aldrei hafa farið fram jafnítarlegar rannsóknir hér á landi vegna einnar virkjunar eins og hafa verið í tengslum við Kárahnjúkavirkjun. Farið hefur verið yfir allar ábendingar utanaðkomandi aðila og færustu sérfræðingar hérlendis og erlendis hafa komið að málinu. Það er mat sérfræðinga að fyllsta öryggis sé gætt í hönnun og byggingu mannvirkjanna. Endurskoðað áhættumat sem var lagt fram á stjórnarfundi í dag, 28. ágúst 2006, staðfestir fyrra mat og verður því haldið áfram með framkvæmdina eins og ráðgert var.

Stjórn Landsvirkjunar lýsir yfir fyllsta trausti á þá starfsmenn Landsvirkjunar og aðra sem hafa unnið að hönnun og byggingu Kárahnjúkavirkjunar og vill fullvissa landsmenn að alls öryggis hafi verið gætt við hönnun og byggingu mannvirkjanna og að engin hætta steðji að íbúum svæðisins."

Tillaga Álfheiðar Ingadóttur um að skipa sérstaka óháða nefnd til að kynna sér stíflur af svipaðri gerð erlendis og fara yfir fyrirliggjandi endurskoðað áhættumat hlaut ekki stuðning.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×