Viðskipti erlent

Góð smásöluverslun í Bandaríkjunum

Við Wal-Mart verslun í Bandaríkjunum
Við Wal-Mart verslun í Bandaríkjunum Mynd/AFP

Smásöluverslun var með besta móti í Bandaríkjunum í maí og fór hún langt fram úr væntingum. Óvíst er með áframhaldandi vöxt smásöluverslunar vegna stöðu efnahagsmála og eru neytendur svartsýnir um hvað næsta hálfa árið beri í skauti sér.

Í könnun samtaka verslunarinnar í Bandaríkjunum á 39 verslunum þar í landi kom í ljós að viðskipti í 25 verslanakeðjum var umfram væntingar. T.d. jókst sala hjá Wal-Mart verslanakeðjunni um 2,3 prósent frá sama mánuði fyrir ári.

Í könnuninni kom ennfremur í ljós að 75 prósent neytenda hafði dregið úr neyslu, m.a. vegna hás olíuverðs, og er útlit fyrir að þeir geri það áfram.

Þrátt fyrir þetta er ýmislegt sem bendir til betri skilyrða í efnahagslífinu. Framleiðni vestra jókst á ársgrundvelli um 3,7 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins og er það 0,5 prósentustigum yfir meðaltali. Á sama tíma fyrir ári dróst framleiðni hins vegar saman um 0,3 prósent.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×