Viðskipti erlent

Olíuverð lækkaði á helstu mörkuðum

Mynd/AFP

Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að lækka á helstu mörkuðum í dag í kjöfar  þess að Bandaríkjastjórn lýsti yfir vilja í gær  til að hefja beinar samningaviðræður við Íransstjórn vegna kjarnorkuáætlunar Írana.

Olía, sem afhent verður í júlí, lækkaði um 36 sent í rafrænum viðskiptum á markaði í New York í Bandaríkjunum og stendur í 70,93 Bandaríkjadölum á tunnu. Í gær lækkaði verðið um 74 sent og endaði í 71,29 dölum á tunnu.

Þá lækkaði verð á Norðursjávarolíu um 31 sent og stendur það í 70,10 dölum á tunnu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×