Viðskipti erlent

Stýrivextir hækka í Noregi

Seðlabanki Noregs hækkaði stýrivexti um 25 punkta í dag og standa þeir nú í 2,75 prósentum. Í hálf fimm fréttum greiningardeildar KB banka segir að þetta sé í fjórða sinn á innan við ári sem bankinn hækkar stýrivextina.

Þar segir ennfremur að væntingar markaðsaðila hafi verið blendnar enda hafi menn ýmist búist við óbreyttum vöxtum eða sömu hækkun og raunin varð.

Hækkanir á heimsmarkaðsverði olíu hafa aukið tekjur í norskum olíuiðnaði umtalsvert og stuðlað að þenslu í norsku efnahagslífi, að sögn greiningardeildarinnar. Þrátt fyrir merki um þenslu var kjarnaverðbólga, þ.e. verðbólga án orkuverðs og skatta, aðeins 0,8 prósent í apríl á meðan markmið seðlabankans miðast við 2,5 prósent. Því mun seðlabankinn halda vöxtum tiltölulega lágum enn um sinn þar til verðbólgan fer að nálgast markmið bankans.

Þá segir að aatvinnuleysi í Noregi hafi mælst 2,8 prósent og hafi það ekki verið minna síðan í lok árs 2001.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×