Fótbolti

FC København Danmerkurmeistari

FC København fagnaði í dag danska meistaratitlinum í knattspyrnu þrátt fyrir 1-0 tap gegn OB í Óðinsvéum. Tapið skipti engu máli fyrir Kaupmannahafnarliðið því Brøndby steinlá fyrir Horsens, 4-1. Þetta fimmti Danmerkurmeistaratitill København síðan félagið var stofnað árið 1992.

Bjarni Ólafur Eiríksson og Hörður Sveinsson léku báðir með Silkeborg sem vann Nordsjælland 2-0. Ein umferð er eftir af SAS-deildinni í Danmörku og er København efst með 73 stig en Brøndby með 67 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×