Sport

Schumacher útilokar ekki að skipta um lið

Michael Schumacher
Michael Schumacher NordicPhotos/GettyImages

Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Þjóðverjinn Michael Schumacher, útilokar ekki að hann skipti um lið þegar samningi hans við Ferrari lýkur árið 2007.

Schumacher segir að hann ætli sér að ákveða um mitt næsta tímabil hvort hann ætli sér að hætta að því tímabili loknu. "Ég ég held áfram eftir 2006, er ég 99% viss um að það verði þá með Ferrari, ég vil ekki ljúga neinu. Svo er spurning um þetta eina prósent ef ég ákveð að halda áfram, hvort það verður þá með Ferrari. Ég vil fyrst og fremst vera í aðstöðu til að vinna meistaratitla og það hefur mjög mikið að segja í framtíðinni," sagði Schumacher.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×