Innlent

Gunnsteinn vill 2. sætið

Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, sækist eftir 2. sæti í prófkjöri flokksins vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Gunnsteinn skipaði 3. sæti á framboðslista flokksins fyrir fjórum árum en leggur nú til atlögu við Ármann Kr. Ólason sem þá skipaði 2. sætið.

Auk þess að sitja í bæjarstjórn er Gunnsteinn skólastjóri Lindaskóla og formaður skipulagsnefndar Kópavogs.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×