Bíó og sjónvarp

Ný mynd um Che

Steven Soderbergh.
Gerir tvær myndir um Che Guevara.
Steven Soderbergh. Gerir tvær myndir um Che Guevara.

Bandaríski leikstjórinn Steven Soderbergh ætlar að gera tvær myndir um argentíska byltingaleiðtogann Che Guevara. Reiknað er með að Benico del Toro leiki Che en aðrir leikarar sem hafa verið nefndir til sögunnar eru Javier Bardem, Frank Potente og Benjamin Bratt.

Fyrri myndin fjallar um þá atburði sem áttu sér stað þegar Che og Fidel Castro komu til Kúbu árið 1956 en seinni myndin er um ferðalag hans til New York þegar Che talaði á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1964.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×