Bíó og sjónvarp

Samdi við Universal

sacha baron cohen
sacha baron cohen

Sacha Baron Cohen, maðurinn á bak við Borat og Ali G, hefur skrifað undir tæplega þriggja milljarða samning við Universal um að fyrirtækið framleiði og eignist dreifingarréttinn að næstu mynd hans. Verður hún byggð á samkynhneigðu tískulöggunni Bruno sem gerði garðinn frægan í þáttunum Ali G.

Nýjasta mynd Barons Cohen, Borat, verður frumsýnd á næstunni og er hennar beðið með mikilli eftirvæntingu. Fjallar hún um ævintýri sjónvarpsmannsins Borats frá Kasakstan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×