Bíó og sjónvarp

Afþakkaði næstum því

Daniel Craig Sést hér í hlutverki sínu sem James Bond umvafinn förgum fljóðum eins og njósnaranum sæmir.
Daniel Craig Sést hér í hlutverki sínu sem James Bond umvafinn förgum fljóðum eins og njósnaranum sæmir.

Leikarinn Daniel Craig var næstum því búin að afþakka hlutverk James Bond vegna þess að hann vildi ekki vera talinn vera ein ákveðin týpa af aðdáendum sínum. Craig tekur í fyrsta sinn við hlutverki njósnara hennar hátignar í nýju Bond myndinni Casino Royale sem frumsýnd verður í Nóvember.

Ég þurfti að hugsa mig vel um áður en ég tók hlutverkið að mér vegna þess að ég var ekki viss hvaða áhrif það hefði á ferilinn minn. Leikarinn segir einnig að peningarnir hafa verið stór þáttur í því að hann ákvað að láta slag standa og taka James Bond að sér.

Hlurverkavalið hefur verið umdeild og eru margir aðdáendur njósnarans fræga ekki ánægðir með Craig í hlutverkinu. Það verður því forvitninlegt að sjá hvernig Casino Royale leggst í áhorfendur þegar hún kemur í kvikmyndahús.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×