Bíó og sjónvarp

Leikhúsmenn í útrás

Þorleifur Örn Arnarsson vakti nokkra athygli í finnsku pressunni fyrir leikstjórn sína á Clockworks.
Þorleifur Örn Arnarsson vakti nokkra athygli í finnsku pressunni fyrir leikstjórn sína á Clockworks.

Þorleifur Örn Arnarsson kom heim í gær frá Finnlandi en hann vakti nokkra athygli þar fyrir sviðsetningu sína, leikmynd og leikgerð á Clockworks fyrir virtan sjálfstæðan leikhóp þar í landi, Virus, á dögunum. Fékk sú sýning góða dóma.

Að sögn Þorleifs var leitað til hans af hálfu hópsins og vann hann leikgerðina sem „hiklaust“ byggir á Clockwork Orange eftir Burgess þótt ekki hafi fengist til þess leyfi.

Frumsýning var þann 6. október í leikhúsi hópsins í gamalli vatnsverksmiðju en í sal sem tekur 1580 gesti í sæti. Átta leikarar taka þátt í sýningunni og verður hún á fjölunum fram í desember.

Aðrir íslenskir leikhúsmenn eru enn að í finnskum leikhúsum: sviðsetning Gunnars Helgasonar á Hellisbúanum gengur enn í Sænska leikhúsinu í Helsinki og verk konu hans, Bjarkar Jakobsdóttur, er enn verið að sýna í leikstjórn hennar. Þessar sýningar hafa gengið í nokkur misseri: Hellisbúinn á þriðja ár og Sellófan er á öðru ári.

Sigurður Karlsson leikari hefur haft aðsetur í Finnlandi í nokkur ár. Hann hefur leikið nokkuð, var meðal annars í sviðsetningu Borgars Garðarssonar á Þið munið hann Jörund á liðnu sumri í sumarleikhúsi en sú hefð er gömul í Finnlandi að leika undir berum himni sumarlangt. Söngleikur Jónasar Árnasonar um Jörund var einmitt verkið sem dró Borgar til Svíþjóðar fyrir þremur áratugum svo honum er leikritið kunnugt. Hann lék líka í frumuppfærslu verksins hjá Leikfélagi Reykjavíkur á sínum tíma.

Sigurður kvaðst í samtali við Fréttablaðið sinna leik í hjáverkum. Í sumar hafi hann munað að þau voru orðin fjörutíu árin sem hann hafði leikið: „ Þá var komið nóg.“ Hann sagðist einkum einbeita sér að þýðingum þessi misserin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×