Bíó og sjónvarp

Kaurismaki bannar mynd sína í Óskar

Aki Kaurismaki er virtasti kvikmyndahöfundur finna
Andstaða hans við óskarstilnefningu kom ekki á óvart
Aki Kaurismaki er virtasti kvikmyndahöfundur finna Andstaða hans við óskarstilnefningu kom ekki á óvart

Ari Kaurismaki, finnski leikstjórinn góðkunni, hefur lagt blátt bann við að kvikmynd hans Ljós í svartamyrkri fari í forval til Óskarsverðlauna fyrir Finnlands hönd. Það þýðir að engin kvikmynd verður lögð fram af hálfu Finna til Óskarsverðlauna eftir ára­mótin.

Tók finnska kvikmyndastofnunin af skarið með það að því er Ritzau-fréttastofan hefur greint frá. Árið 2003 afþakkaði Kaurismaki boð á Óskarshátíðina þar sem Maður án fortíðar hafði verið valin í keppnina um titilinn besta erlenda leikna myndin. Þá var það innrásin í Írak sem varð til þess að Ari var víðs fjarri. Ari er þekktur fyrir sínar dökku og sparlegu kvikmyndir af löndum sínum en nýtur mikils álits.

Börn eftir Ragnar Bragason var valin til keppninnar fyrir Íslands hönd. Mótmæli Kaurismakis gætu dregið dilk á eftir sér fari fleiri að fordæmi hans, en andstaða við Íraksstríðið fer nú vaxandi víða um lönd meðal listamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×