Bíó og sjónvarp

Rokland kvikmynduð á næsta ári

Rokland sló í gegn hjá Íslendingum um síðustu jól en hún segir sögu bloggarans Bödda sem hyggst gjörbylta samfélaginu.
Rokland sló í gegn hjá Íslendingum um síðustu jól en hún segir sögu bloggarans Bödda sem hyggst gjörbylta samfélaginu.
Marteinn Þórsson, framleiðandi, skrifar undir samning þess efnis að hann skrifi kvikmyndahandrit eftir sögu Hallgríms Helgasonar, Rokland.

„Það er rétt, ég skrifa undir samningin í dag og því er þetta í höfn,“ sagði Marteinn þegar Fréttablaðið innti hann eftir þessu. „Ég hef verið að vinna að þessu í allt sumar og átti síðan góðan fund með Páli Valssyni, útgefanda bókarinnar, sem leist mjög vel á hvert ég vildi fara með bókina,“ útskýrir Marteinn.

Snorri Þórisson hjá Pegasus mun framleiða myndina og var Marteinn bjartsýnn á framhaldið. „Nú þarf að skrifa handritið og ef allt gengur að óskum getum við vonandi hafist handa næsta haust,“ segir Marteinn.

Rokland sló í gegn hjá Íslendingum í fyrra en hún segir frá bloggaranum og fyrrverandi framhaldsskólakennaranum Bödda sem býr út á landi og skrifar um lífið á Sauðárkróki í óþökk íbúanna. Böddi verður sífellt afskiptari í samfélaginu og ríður að endingu til Reykjavíkur og ætlar sér að gjörbylta öllu samfélaginu.

Ljóst er að hart verður barist um hlutverk Bödda hjá karlleikurum Íslands en sá sem síðast túlkaði persónu Hallgríms var Hilmir Snær Guðnason þegar hann skilaði hlutverki Hlyns í 101 Reykjavík eftir Baltasar Kormák. Hvort Hilmir mun endurtaka leikinn skýrist væntanlega næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×