Sport

Gummersbach - Kiel í beinni

Guðjón Valur er markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar
Guðjón Valur er markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar

Það verður enginn smá leikur í beinni útsendingu á Sýn á morgun þegar Guðjón Valur Sigurðsson, Róbert Gunnarsson og félagar í Gummersbach taka á móti stórliði Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Gummersbach gekk um helgina frá samningi við tvo nýja leikmenn til að styrkja sig í toppbaráttunni en þetta eru skyttan Denis Zacharov og markvörðurinn Nandor Fazekas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×