Innlent

Kristján Þór vill fyrsta sætið

Kristján Þór á fundi.
Kristján Þór á fundi. MYND/KK

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri sækist eftir fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar næsta vor. Hann útilokar ekki að fara í þingframboð.

Þessu lýsir Kristján Þór yfir í fréttatilkynningu sem hann var að senda frá sér. Hún er svohljóðandi:

"Ég hef ákveðið að gefa kost á mér áfram sem oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og set því stefnuna á 1. sæti í prófkjöri flokksins þann 11. febrúar næstkomandi. Að því loknu hyggst ég leggja mig allan fram, ásamt félögum mínum í Sjálfstæðisflokknum, um að vinna að glæstum árangri flokksins á Akureyri í næstu bæjarstjórnarkosningum.

Ég hef ítrekað verið spurður að því undanfarnar vikur hvort ég hyggist gefa kost á mér á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kosningum til Alþingis vorið 2007. Í því sambandi vil ég taka fram:

Þegar ég tilkynnti um framboð mitt til varaformanns Sjálfstæðisflokksins sl. haust lýsti ég því yfir að ég stefndi að því að næsta viðfangsefni mitt á pólitískum vettvangi yrði að leiða lista Sjálfstæðismanna á Akureyri til forystu í bæjarstjórn að loknum kosningum vorið 2006.

Þessi skoðun mín hefur ekkert breyst.

Jafnframt lýsti ég því yfir að ég hefði alla tíð haft áhuga á því að takast á við ný og ögrandi verkefni á pólitískum vettvangi. Meðan sá áhugi er fyrir hendi þá útiloka ég ekki neitt það viðfangsefni sem kjósendur og stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins kunna að fela mér í framtíðinni.

Á meðan mér er falið umboð til að vinna að framfaramálum í þágu Akureyringa skiptir það mig höfuðmáli að hafa sem víðtækan stuðning við úrlausn þeirra verkefna sem unnið er að hverju sinni. Ég vonast því eftir víðtækum stuðningi við þá ákvörðun mína að gefa kost á mér í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í komandi bæjarstjórnarkosningum.

Ég óska Akureyringum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×