Sport

Magdeburg stöðvaði Gummersbach

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg stöðvuðu í gærkvöld sigurgöngu Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni, þegar liðið vann sigur 38-28. Sigfús Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg, en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson var með tvö. Þetta var fysta tap Guðjóns og félaga á leiktíðinni.

Grosswallstadt sigraði Dusseldorf 30-24. Einar Hólmgeirsson skoraði sex mörk fyrir Grosswallstadt og Alexander Petersson skoraði þrjú.

Minden tapaði enn einum leiknum, nú fyrir Nordhorn 35-28, en Snorri Steinn Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir Minden í leiknum.

 Wilhelmshaven sigraði Göppingen með einu marki 28-27. Gylfi Gylfason skoraði þrjú mörk fyrir Wilhelmshaven, en Jaliesky Garcia komst ekki á blað hjá Göppingen.

Róbert Sighvatsson skoraði tvö mörk fyrir Wetzlar í tapi fyrir Pfullingen 35-26 og Lubbecke tapaði fyrir Melsungen 31-29. Loks vann Kiel góðan sigur á Lemgo 36-34 og er efst í deildinni. Gummersbach er í öðru sætinu, tveimur stigum á eftir, Flensburg í þriðja og Magdeburg er í fjórða sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×