Sport

8-liða úrslitin kláruðust í gær

Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í þýska bikarnum í gærkvöldi, en þá varð ljóst hvaða lið komast áfram í fjórðungsúrslit keppninnar. Gummersbach átti í litlum vandræðum með Solingen og vann 41-22, þar sem Guðjón Valur skoraði 6 mörk og Róbert Gunnarsson skoraði 4 mörk.

Heiðmar Felixson skoraði 7 mörk fyrir Hannover sem lagði Leutershausen 31-29 og þá vann Magdeburg sigur á Nettelsted 40-36, þar sem Sigfús Sigurðsson skoraði 3 mörk fyrir Magdeburg.

Önnur úrslit urðu þau að Melsungen sló út Hamm 34-24, Dormagen sigraði Erlangen 38-25, Hamburg sigraði Nordhorn 32-31 og Kronau lagði Ludwigsburg 30-21.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×