Sport

West Ham lagði Middlesbrough

West Ham sigraði Middlesbrough 2-1 í ensku úrvalsdeildinni nú áðan og Bolton sigraði West Brom 2-0, en öll mörkin í leikjunum tveimur komu í síðari hálfleik. Chelsea var rétt í þessu að jafna leikinn gegn Everton, eftir að hafa lent undir 1-0. Teddy Sheringham skoraði fyrra mark West Ham, en síðara markið var umdeilt sjálfsmark Chris Riggot. Franck Quedrue minnkaði muninn fyrir Boro rétt fyrir leikslok. Bolton vann West Brom 2-0. Hidetoshi Nakata skoraði fyrra mark Bolton á 81. mínútu og Kevin Nolan bætti við öðru marki í blálokin.

Staðan í leik Everton og Chelsea er jöfn 1-1. James Beattie kom botnliðinu yfir með marki úr vítaspyrnu á 37. mínútu, en Frank Lampard jafnaði metin á þeirri 50. með sannkölluðum þrumufleyg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×