Sport

Valencia komið áfram

Roda frá Hollandi og Valencia gerðu markalaust jafntefli í Intertoto keppninni í gær en Valencia vann samanlagt 4-0. Hamburger Sport Verein lagði Sigma frá Tékklandi, 3-0, og samanlagt 4-0. Deportivo vann Newcastle á St. Jamse´s Park, 2-1, og samanlagt 4-2.  Marseille frá Frakklandi vann Lazio með þremur mörkum gegn engu eftir markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna. Lens frá Frakklandi lagði Wolfsburg, 4-0, og CFR Cluj vann Vilnius, 5-1, samanlagt 7-2. Hamburger mætir Valencia um sæti í Evrópukeppni félagsliða, CFR Cluj leikur gegn Lens og Deportivo og Marseille eigast við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×