Erlent

Svæði girt af í London

Vopnaðir lögreglumenn hafa girt af svæði í vesturhluta London og sent vegfarendur burt. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvers vegna svæðinu hefur verið lokað en fréttir hafa borist af nokkrum litlum sprengjuárásum á svæðinu og vitni segjast hafa heyrt skothvelli. Óstaðfestar fréttir herma að tveir mannanna þriggja sem reyndu að gera árásir í London fyrir viku séu á svæðinu og lögregla hafi handtekið annan þeirra.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×