Menning

Guðbergur og Slavek sigursælir

Heimildamyndin Rithöfundur með myndavél eftir Helgu Brekkan og Slavek the Shit, stuttmynd Gríms Hákonarsonar, hlutu verðlaun sem bestu myndirnar á Heimilda- og stuttmyndahátíðinni í Reykjavík, Reykjavík Shorts & Docs, sem lauk í gær.

Mynd Helgu fjallar um einn virtasta núlifandi rithöfund þjóðarinnar, Guðberg Bergsson, og byggist að miklu leyti á myndskeiðum sem hann sjálfur hefur tekið upp í gegnum tíðina. Mynd Gríms var m.a. sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes á dögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×