Sport

Philadelphia í úrslitakeppni

Philadelphia tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrslitakeppni NBA-körfuboltans þegar liðið sigraði Milwaukee Bucks með 122 stigum gegn 106. Allen Iverson var maðurinn á bak við sigurinn, skoraði 39 stig og átti að auki 12 stoðsendingar. Philadelphia á möguleika á því að ná 6. sætinu í Austurdeildinni en það skýrist eftir síðustu umferðina sem verður annað kvöld. Phoenix Suns vann 62. leikinn í vetur og jafnaði besta árangur félagsins. Phoenix vann Denver Nuggets 128-114 og tryggði sér í leiðinni fyrsta sætið í Vesturdeildinni og heimaleikjaréttinn í allri úrslitakeppninni. Amare Stoudamire og Joe Johnson skoruðu 26 stig fyrir Phoenix en Carmelo Anthony skoraði 36 stig fyrir Denver. Memphis sigraði San Antonio Spurs 94-92, Minnesota marði sigur á New Orleans Hornets 102-99, Orlando sigraði Indiana 92-88, Utah vann Sacramento 92-82, Golden State burstaði Los Angeles Lakers 126-99 og Houston skellti LA Clippers 115-90.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×