Sport

Bayern og Schalke unnu bæði

Baráttan harðnar á toppi þýsku bundesligunnar í knattspyrnu. Bayern Munchen vann Werder Bremen 1-0 á heimavelli með marki Michael Ballack á 7. mínútu og Schalke vann öruggan 0-2 útisigur á Bochum með mörkum Brasilíumannanna Ailton og Lincoln. Liðin fylgja því hvort öðru eins og skugginn á toppi deildarinnar og eru bæði með 50 stig. Úrslit dagsins í bundesligunni:Bayern Munchen - Werder Bremen 1-0 Ballack 7 Mönchengladbach - Wolfsburg 1-0 Sverkos 86 Hamburg - Leverkusen 1-0 van Buyten 21 Hannover - Hansa Rostock 0-1 Prica 27 Mainz - Freiburg 5-0 Gerber 21, Friedrich 26, Babatz 43 (víti), Da Silva 70, Thurk 81 Stuttgart - Bielefeld 2-1 Soldo 48, Cacau 75 - Baokye 78 Bochum - Schalke 0-2 Ailton 30, Lincoln 77



Fleiri fréttir

Sjá meira


×