Sport

Allback í fjögurra leikja bann

Sænski framherjinn Marcus Allback, sem leikur með Hansa Rostock í þýsku Bundesligunni, hefur verið dæmdur í fjögurra leikja keppnisbann af þýska knattspyrnusambandinu. Allback missti stjórn á skapi sínu í leik Hansa gegn Schalke á laugardag og sló til Dario Rodriguez, leikmanns Schalke. Schalke jafnaði metin með afar umdeildu marki í áðurnefndum leik og brugðust leikmenn Hansa ókvæða við og Allback manna verst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×