Sport

Fórum illa með dauðafærin

Grimmur á hliðarlínunni. Alfreð Gíslason er vanur að láta heyra vel og duglega í sér á hliðarlínunni.
Grimmur á hliðarlínunni. Alfreð Gíslason er vanur að láta heyra vel og duglega í sér á hliðarlínunni.

Leikur liðanna á Spáni í gær var stórkostleg skemmtun en Magdeburg átti fyrir höndum erfitt verkefni að vinna upp tveggja marka forskot Barcelona úr fyrri leiknum í Þýskalandi. Leikurinn var jafn nánast frá upphafi og þrátt fyrir að hafa hvorki heppnina né dómarana með sér hékk Magdeburg í Börsungum og ljóst að lokamínútur leiksins yrðu æsispennandi.

Ákveðinn vendipunktur varð átta mínútum fyrir leikslok þegar Sigfús Sigurðsson hjá Magdeburg var útilokaður frá leiknum vegna þriggja brottvísana. Fyrir vikið var varnarleikur Magdeburg ekki eins sterkur og heimamenn gengu á lagið og lönduðu fjögurra marka sigri, 27-23.

"Við hefðum alveg getað unnið þennan leik en fórum illa með dauðafærin og þá sérstaklega í hornunum," sagði Alfreð frekar svekktur eftir leikinn þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hans.

Dómgæslan var ekkert sérstaklega hliðholl Magdeburg en Alfreð vildi ekki gera of mikið úr þeirri staðreynd. "Það hefur oft verið verra í Barcelona. Það boðar aldrei gott að hafa júgóslavneska dómara í Barcelona og mér fannst margir dómar á krítískum augnablikum í síðari hálfleik falla með heimaliðinu," sagði Alfreð en hann var sammála því að það hefði verið vont að missa Sigfús af velli.

"Það opnaði svolítið vörnina hjá okkur. Annars tapaðist þessi viðureign að mörgu leyti í okkar heimaleik. Svo erum við með marga meidda menn og það hafði sitt að segja," sagði Alfreð Gíslason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×