Innlent

Andakílsskóli verði lagður niður

Samkvæmt skýrslu Háskólans á Akureyri, sem unnin var fyrir sameiningarnefnd sveitarfélaga norðan Skarðsheiðar um skólamál, er hagkvæmast að leggja Andakílsskóla niður. Nemendum af svæðinu verði þess í stað ekið í skóla í Borgarnesi. Þar verði áfram rekinn grunnskóli og sömuleiðis Kleppjárnsreykjaskóli og Varmalandsskóli en Laugagerðisskóli í Kolbeinsstaðahreppi verði skólasel. Heimamenn í Andakíl munu margir vera þessu andvígir og sömuleiðis í Kolbeinsstaðahreppi.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×