Sport

Denver á fleygiferð

Þrír leikir fóru fram í NBA-körfuboltanum í nótt. Los Angeles Clippers lögðu Cleveland Cavaliers með 94 stigum gegn 82. Elton Brand skoraði 30 stig fyrir Clippers en LeBron James skoraði 22 fyrir Cleveland. Denver Nuggets skellti New Orleans Hornets með 76 stigum 67 en þetta var sjötti sigurleikur Denver í síðustu sjö leikjum. Hornets hafa hins vegar aðeins unnið einn leik af 13 á leiktíðinni. Paul Pierce skoraði 24 stig fyrir Boston Celtics sem lögðu Orlando með 117 stigum gegn 101.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×