Bíó og sjónvarp

Ætlar að kaupa sér nýja skyrtu

"Þetta kom mér mjög á óvart og ég átti alls ekki von á þessu. Fékk bullandi hjartslátt við tilnefninguna en er búinn að jafna mig. Það er allt í fínu lagi núna," segir kvikmyndagerðarmaðurinn Páll Steingrímsson þegar hann er spurður út í stóru tíðindin; að fá heiðursverðlaun Eddu þetta árið. Segist vel hafa skilið að Magnús Magnússon, sjónvarpsmaður á BBC, hafi hlotnast heiðurinn í fyrra því hann sé mikill jöfur, en þess má geta að Magnús er tilnefndur fyrir handritagerð heimildamyndar Páls; Öræfakyrrð (World of Solitude) sem einnig er tilnefnd til Eddu-verðlauna í ár sem besta heimildarmyndin.

"Ég vissi að Magnús átti þetta skilið en hér heima eru ekki svo margir sem standa þokkalega í þessu. Það er nefnilega heilmikill róður að fjármagna og fá til baka fjármagn í heimildarmyndagerð og ég er sennilega eini maðurinn sem hef náð að þrauka í þessu frá 1986; alltaf með fólk í vinnu og borga því laun. Held að mér hafi tekist þetta vegna þess að ég kem myndunum í umferð erlendis, en það er lífsnauðsyn vegna smæðar íslenska markaðarins."

Páll segir Eddu-verðlaunin skipta sig miklu atvinnulega séð og vera sterk auglýsing sem komi sér vel þegar reynt er við erlenda dreifingu. "En mér gengur reyndar ekki of vel að koma Öræfakyrrðinni í umferð því þeir segja hana ekki passa í neinn flokk þar sem hún sé ekki náttúrulífsmynd og í henni sé þokkalega beittur áróður. Ég hef hins vegar séð svona myndir á bæði Discovery og National Geographic og veit að ég á að geta komist inn. Myndin spilast gríðarlega vel fyrir magnaða tilstilli Magnúsar, en það eru ekki margir sem maður hnýtur um með þessa útgeislun, og í raun sárafáir."

Páll hefur gert 32 heimildarmyndir á síðustu fimmtán árum; flestar um íslenska náttúru og dýralíf. Segist þó vart geta kallast David Attenborough okkar Íslendinga. "En ég hef mjög gaman af því sem ég geri og á meðan maður vaknar brosandi og hlakkar til að byrja nýjan dag er maður í fínum málum. Mér er þetta heilmikið hjartans mál og byrjaði fljótt að glíma á vettvangi sjónlistar; teikna, mála og ljósmynda. Svo þegar ég eignaðist þessa kvikmyndavél réð það úrslitum og ég stýrði ekki sjálfur hvað varð úr. Ég var kominn á rétta hillu."

Þegar Páll er spurður hvort glamúrinn á Eddunni verði ekki of yfirþyrmandi fyrir mann sem elskar náttúrustillur og öræfakyrrð segir hann hátíðina ekki verða sér sjokk. "Ég er ekki feiminn við fólk og hef af því yndi, en hitt er mér nauðsyn. Ég verð að komast frá asanum, vera einn og fá súrefni, sjó og fallegt land, svo ég tali nú ekki um fuglaklið. Flestar hugmyndir um myndsmíði fæ ég einn með sjálfum mér. Ég á hreiður á Snæfellsnesi þar sem ég fer oft og sérstaklega á veturnar. Það er enginn uppspuni að þar býr einhver krafur og orka sem hefur áhrif á mann."

Og Páll segist eiga feiknin öll af fínu punti sem muni sóma sér vel í kringum Eddu-verðlaunagripinn. "Ég finn styttunni stað og ætla allavega að kaupa mér skyrtu fyrir veisluhöldin," segir Páll alveg staðfastur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×