Sport

Halldóra hætt hjá KR

Halldóra Sigurðardóttir mun ekki halda áfram þjálfun kvennaliðs KR í knattspyrnu. Halldóra og knattspyrnudeild KR hafa náð samkomulagi þess efnis að hún láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna. Halldóra tók við þjálfun liðsins í fyrra en hún hafði verið aðstoðarþjálfari árin 2001 og 2002. Ekki er ljóst á þessari stundu hver tekur við starfinu af Halldóru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×