Sport

KSÍ aðhefst ekkert frekar

Forráðamenn KSÍ hafa ákveðið að aðhafast ekki frekar vegna atviks sem átti sér stað á leik KR og FH á KR-velli á dögunum í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Þá hljóp sjónvarpsmaðurinn loðni, Auðunn Blöndal, inn á völlinn og framkvæmdi svokallaða "truflun" sem þeir félagar í sjónvarpsþættinum vinsæla á Popptívi, 70 Mínútur, stunda reglulega og taka að sjálfsögðu upp á myndband. Atvikið var litið alvarlegum augum hjá KSÍ sem og KR-ingum sem hefðu getað átt yfir höfði sér sekt og jafnvel heimaleikjabann. Svo fór þó sem betur fer ekki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×