Menning

Stratocaster gítarinn 50 ára

Fimmtíu ár eru nú liðin frá því að Fender Stratocaster gítarinn, sem notaður hefur verið af gítarsnillingum eins og Jimi Hendrix og Eric Clapton, kom fram á sjónarsviðið. Gítarinn hefur haft mikil áhrif í tónlistarsögunni og segja gítarsérfræðingar að hálfri öld eftir að hann kom fyrst fram sé hann enn hljóðfærið sem flestir gítarleikarar velja. Í tilefni af afmælinu hefur Fender fyrirtækið ákveðið að gefa út endurgerðir af Stratocaster gítarnum frá árinu 1954 í takmörkuðu upplagi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×