Menning

Mót í Víkingaskák

Þann 22. júlí var haldið mót í Víkingaskák. Vel fór á með mönnum hvort sem þeir unnu eða töpuðu. Eins og sjá má á myndinni fengu allir þátttakendur verðlaunapening. Víkingaskák er manntafl sem fundið var upp af Magnúsi Ólafssyni. "Ég kláraði að þróa taflið 1972. Svo gaf ég Spasskí og Fischer eintak af taflinu þegar þeir komu hingað til lands," segir Magnús. Hann segir að erfiðlega hafi gengið að fá menn til að tefla taflið þó svo að það hafi breyst hin síðari ár. Í Víkingaskák eru tvö lið og samanstendur hvort lið af níu mönnum og níu peðum. Nöfn taflmannanna eru þau sömu og í venjulegri skák nema að níundi maðurinn heitir víkingur. Manngangnum svipar til manngangsins í hefðbundinni skák og er auðlærður. Aðeins manngangur víkingsins er nýr. Í hefðbundnu tafli eru tvær stefnur en í Víkingaskák eru þær þrjár. Víkingaskákin mun vera heldur flóknara tafl en venjuleg skák sökum fleiri taflmanna, fleiri reita á taflborðinu auk einnar stefnu meir. Þrátt fyrir göfgi hinnar klassísku skákar hafa öðru hvoru alltaf verið gerðar tilraunir til að þróa ný afbrigði.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×