Menning

Dagskrá Airwaves skýrist

Hin árlega Airwaves-hátið sem fram fer 20.- 24. október er beðið í ofvæni enda fjölmennasti tónlistarviðburður ársins. Nú fer dagskrá hátíðarinnar að skýrast en búist er við þátttöku um hundrað hljómsveita og tónlistarmanna. Helstu erlendu viðburðir hátíðarinnar verða bresku Four Tet, London Elektricity og Keane, bandarísku Non Phixion, The Shins og Radio 4 auk Kid Koala frá Kanada, To Rococo Rot frá Þýskalandi og Magnet frá Noregi, svo eitthvað sé nefnt. The Keane hefur krónað efst á breska vinsældarlistanum allan júnímánuð og virðist vera söluvænlegasta band hátíðarinnar. Sérstök eftirvænting meðal músíkspekúlanta er til bandaríska Four Tet sem m.a. hafa hitað upp fyrir Radiohead á tónleikaferðalögum og vinsældir rokkbandsins Radio 4 eru einnig talsverðar hér á landi.   Gaukur á Stöng, Nasa og Hafnarhúsið bera hitann og þungann af hátíðinni en fjöldi annarra vel valdra staða í miðbænum munu hýsa sveitirnar sem fram koma. Íslensku framlögin verða ekki af verri endanum á Airwaves en m.a. spila Leaves, Mínus, Jagúar, Tenderfoot, Einar Örn - Ghostigital, Vinyl, Trabant og Mugison. Hátíðin hefur náð að festa sig vel í sessi sem gróskumikill stórviðburður í tónlistarheiminum eftir þátttöku Suede, The Flaming Lips, The Hives og Fatboy Slim á undanförnum árum. Búist er við fjölda erlendra blaðamanna til að fylgjast með. Hljómsveitirnar sem fram koma aðhyllast margar og ólíkar tónlistarstefnur og ættu þá allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×