Sport

Fyrsti sigur Stjörnunnar

Stjarnan bar sigurorð af Breiðablik, 3-2, í Landsbankadeild kvenna í kvöld og var þetta fyrsti sigur Stjörnustúlka á tímabilinu. Bjarnveig Birgisdóttir kom Breiðabliki yfir á 5. mínútu en Harpa Þorsteinsdóttir svaraði fyrir Stjörnuna með tveimur mörkum áður en flautað var til hálfleiks. Björk Gunnarsdóttir skoraði síðan þriðja mark Stjörnunnar þegar átta mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og það skipti litlu máli þótt Greta Mjöll Samúelsdóttir næði að minnka muninn fyrir Breiðablik þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Stjarnan-Breiðablik 3-2 0-1 Bjarnveig Birgisdóttir (5.), 1-1 Harpa Þorsteinsdóttir (12.), 2-1 Harpa Þorsteinsdóttir (44.), 3-1 Björk Gunnarsdóttir (53.), 3-2 Greta Mjöll Samúelsdóttir (70.).



Fleiri fréttir

Sjá meira


×