Menning

Toyota Prius

Rafbíllinn Toyota Prius er ekki aðeins sparneytinn heldur líka öruggur í akstri. Þetta er niðurstaða Euro NCAP. Priusinn sem gengur bæði fyrir bensíni og rafmagni er fyrsti bíllinn af þeirri gerð sem fer í gegnum öryggisprófið hjá Euro NCAP. Niðurstaðan úr prófununum var að Priusinn fékk fleiri stig en bíll hefur áður fengið í flokki hans. Að sögn Björn Víglundssonar hjá P. Samúelsson er nú fimm mánaða biðlisti eftir Toyota Prius hér á landi. Ástæðan er fyrst og fremst gríðarleg sala á Priusnum um allan heim. Þess vegna er ekki nema takamarkaður fjöldi sem hingað kemur. Nýr Toyota Prius kynntur hér á landi í vor. Sextán Prius bílar eru nú komnir eða eru rétt ókomnir á götuna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×