Menning

Ferðatryggingar

Handhafar gull- og silfurviðskiptakorta VISA og Corporate og gullfyrirtækjakorta EUROCARD njóta traustra ferðatrygginga á ferðalögum greiði þeir hluta ferðakostnaðar með greiðslukorti áður en lagt er af stað. Algengur misskilningur er að allir sem ferðast á vegum fyrirtækis séu tryggðir ef greitt er með viðskiptakorti fyrirtækisins. Hið rétta er að tryggingar þessar gilda fyrir einn til tvo viðskiptavini eða samstarfsfélaga í samfylgd korthafans, enda sé ferðakostnaður þeirra færður á sama ferðareikning. Áður en ferð er keypt er gott að fara yfir hverjir eiga að ferðast og hvort þeir eru korthafar. Meta þarf tryggingaþörfina og hafa í huga að munur er á tryggingum eftir tegundum korta. Greiðslu ferðarinnar ætti svo að skipuleggja samkvæmt kortaeign þeirra sem ferðast. Þeir sem vilja kynna sér þetta nánar er bent á heimasíðu Tryggingamiðstöðvarinnar, tmhf.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×