Handbolti

Fyrsta tap Rhein-Neckar Löwen

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Arnór skilaði sínu í frábærum sigri
Arnór skilaði sínu í frábærum sigri vísir/getty
Arnór Þór Gunnarsson og félagar í Bergischer urðu í kvöld fyrsta liðið til að leggja Rhein-Neckar Löwen að velli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta á tímabilinu. Bergischer vann eins marks sigur 24-23 á heimavelli.

Arnór Þór skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer sem lék frábæran varnarleik í leiknum.

Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen og var einn þriggja markahæstu leikmanna liðsins. Stefán Rafn Sigurmannsson leikur einnig með Ljónunum en skoraði ekki í leiknum.

Rhein-Neckar Löwen er á toppnum með tíu stig í sex leikjum og Bergischer er með 5 stig og um miðja deild.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach sem lagði BBM Bietigheim 35-29 á heimavelli.

Gummersbach er með 7 stig í sex leikjum en Bietigheim er með 2 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×