Harry Redknapp mátti í dag þola sitt fyrsta tap á heimavelli síðan hann tók við Tottenham þegar lið hans tapaði 1-0 fyrir Everton.
Það var Steven Pienaar sem skoraði sigurmark Everton í upphafi síðari hálfleiks, en liðið missti framherjana Yakubu og Louis Saha báða meidda af velli.
Tottenham pressaði án afláts síðustu 20 mínútur leiksins en sóknarleikur liðsins var ekki upp á marga fiska án þeirra Jermaine Jenas og Luka Modric á miðjunni.
Mikið fjör var í leik Portsmouth og Blackburn á Fratton Park þar sem heimamenn höfðu sigur 3-2 í æsilegum leik.
Jermain Defoe og Peter Crouch komu Portsmouth í 2-0 á fjögurra mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks, en Matt Derbyshire og Tugay náðu að jafna fyrir Blackburn á fimm mínútna kafla um miðbik hálfleiksins.
Lánleysi Blackburn fullkomnaðist hinsvegar þegar varamaðurinn Sean Davies skoraði sigurmark Portsmouth á 79. mínútu.
Blackburn hefur ekki unnið sigur í síðustu níu leikjum sínum í deildinni og er sem fyrr í næstneðsta sæti með aðeins 13 stig.