Bíó og sjónvarp

Fyrsta sýnishornið úr Rogue One: A Star Wars Story

Samúel Karl Ólason skrifar
Fyrsta sýnishornið úr myndinni Rogue One: A Star Wars Story var birt nú í morgun. Um er að ræða svokallaðan teaser sem sýndur var í sjónvarpi í Bandaríkjunum.

Rogue One fjallar um sveit uppreisnarmanna sem stelur teikningunum að Helstirninu. Hún gerist í raun áður en söguþráður New Hope byrjar.

Myndin var meðal annars tekin upp við Hjörleifshöfða og Hafursey á Mýrdalssandi. Leikstjóri er Gareth Edwards, sem er hvað þekktastur fyrir kvikmynd sína um Godzilla. Þá leika þau Felicity Jones, Mads Mikkelsen, Forest Whitaker og fleiri í myndinni.

Hún verður frumsýnd þann 16. desember næstkomandi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×