Tónlist

Fyrsta stóra hátíðin

Ólöf Skaftadóttir skrifar
 Þau Jófríður, Þórður, og Áslaug ætla að hita upp fyrir Sónar með tónleikum í London.
Þau Jófríður, Þórður, og Áslaug ætla að hita upp fyrir Sónar með tónleikum í London. Fréttablaðið/Valli

Hljómsveitin Samaris er ein þeirra fjögurra íslenskra hljómsveita sem koma fram á Sónar í Barcelona um helgina. Sónar er ein virtasta tónlistarhátíð Evrópu sem fer fram á ári hverju.

Hljómsveitin Samaris er ung að árum og meðlimirnir eru fullir tilhlökkunar vegna Sónar.

„Hátíðir snúast auðvitað alltaf um að fá meiri athygli en okkar markmið er bara að standa okkur vel. Við erum rosalega spennt og hlökkum til að fara út. Þetta er fyrsta stóra hátíðin okkar,“ sagði Áslaug Rún Magnúsdóttir, klarínettleikari sveitarinnar.

Hljómsveitin samanstendur af Jófríði Ákadóttur söngkonu, Þórði Kára Steinþórssyni raftónlistarmanni og Áslaugu. „Við byrjum í London á að taka litla tónleika þar sem smá upphitun fyrir Sónar,“ sagði Áslaug.

„Við erum líka svo ánægð með tímann sem okkur var úthlutaður. Við erum síðust til að spila á dagshátíðinni, Sonar by Day, og ég held að það sé mjög jákvætt. Þá fær maður mestu athyglina frá blaðamönnum og fagaðilum í tónlist, svona á daginn,“ sagði Áslaug létt í bragði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×