Bíó og sjónvarp

Fyrsta stiklan úr myndinni um Whitney Houston

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni um söngkonuna Whitney Houston er komin á netið en myndin verður sýnd á sjónvarpsstöðinni Lifetime. 

Angela Bassett leikstýrir myndinni sem fjallar um stormsama ævi söngkonunnar sem lést langt fyrir aldur fram í febrúar árið 2012. 

Með hlutverk Whitney fer fyrirsætan Yaya DaCosta en Arlen Escarpeta túlkar fyrrverandi eiginmann hennar, Bobby Brown. Farið er yfir samband þeirra í myndinni en þau eiga eina dóttur saman, Bobbi Kristina.

Þá er líka fjallað um samband Whitney og móður hennar, Cissy Houston en Cissy mótmælti gerð myndarinnar í júlí á þessu ári.

Myndin verður sýnd laugardaginn 17. janúar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×