Bíó og sjónvarp

Fyrsta stiklan úr Beauty and the Beast

Samúel Karl Ólason skrifar
Fyrsta stikla Disneymyndarinnar Beauty and the Beast, eða Fríða og dýrið, var birt í dag. Um er að ræða leikna endurgerð á sögunni frægu um tilhugalíf Bellu og dýrsins og húsmuni dýrsins.

Bella er leikin af Emmu Watson og er dýrið leikið af Dan Stevens, sem er enn sem komið er er hvað þekktastur fyrir að leika í Downton Abbey á árum áður.

Meðal annarra leikara eru Kevin Kline, Ewan McGregor, Luke Thompson og Emma Thompson.

Beauty and the Beast verður frumsýnd í mars á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×