Körfubolti

Fyrsta orrustan um Vesturlandið í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pálína Gunnlaugsdóttir leikur með Snæfelli í vetur.
Pálína Gunnlaugsdóttir leikur með Snæfelli í vetur. vísir/anton
Domino’s-deild kvenna fer af stað í kvöld og það er sannkallaður stórleikur á dagskrá í fyrstu umferð. Íslandsmeisturum Snæfells og nýliðum Skallagríms var spáð tveimur efstu sætunum í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna og þeir mætast einmitt í Borgarnesi í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og það má búast við að Fjósið verði troðfullt.

Skallagrímur er að taka þátt í efstu deild kvenna í fyrsta sinn í fjóra áratugi og þetta verður fyrsti Vesturlandsslagurinn í sögu úrvalsdeildar kvenna. Það dregur ekki úr veisluhöldum í kvöld að mótherjarnir séu bæði ríkjandi Íslandsmeistarar og nágrannar þeirra úr Stykkishólmi.

Borgnesingar hafa búið til gríðarlega sterkt kvennalið á stuttum tíma en margir öflugir leikmenn hafa skipt yfir í Skallagrím á þessum tíma. Liðið vann 1. deildina í fyrra og bætti síðan meðal annars við þremur landsliðskonum í sumar. Það er ekki oft sem nýliðum er spáð svo góðu gengi á fyrsta ári en leikmannahópur Skallagrímsliðsins gefur ekki tilefni til annars en að þar fari lið sem ætlar að stimpla sig inn í hóp bestu liða landsins.

Mótherjarnir úr Snæfelli bættu við sig landsliðsbakverðinum Pálínu Gunnlaugsdóttur á dögunum en þær bíða enn eftir því hvað hin öfluga Bryndís Guðmundsdóttir ætlar að gera í vetur. Snæfellsliðið hefur klárað titilinn undanfarin ár þrátt fyrir að missa lykilmenn um sumarið og það er því ekkert skrýtið að liðinu sé spáð titlinum nú þegar liðið mætir með nánast sama lið.

Þrír aðrir leikir í Domino’s-deild kvenna fara fram í kvöld og allir á Suðurnesjunum. Þeir eru Keflavík-Stjarnan, Njarðvík-Valur og Grindavík-Haukar. Allir leikir kvöldsins hefjast á sama tíma eða klukkan 19.15.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×