Tónlist

Fyrsta lag The Stone Roses í 20 ár komið út

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Hljómsveitin The Stone Roses rauf á fimmtudag tuttugu ára útgáfuþögn með laginu All for One. Engin tilkynning var gefin áður en lagið fékk skyndilega stafræna útgáfu. Aðdáendur Manchester sveitarinnar geta heyrt lagið hér að ofan.

Þar með er sá orðrómur staðfestur að sveitin sé að vinna nýtt efni en síðustu árin hefur sveitin komið nokkrum sinnum saman til tónleikahalds.

Nýja lagið verður það fyrsta af nýrri breiðskífu sem sveitin hefur verið að vinna að upp á síðkastið. Það verður þriðja breiðskífa sveitarinnar frá upphafi. Sveitin sló í gegn árið 1989 og varð um skeið ein vinsælasta rokksveit Breta. Hún hætti þó skömmu eftir útgáfu seinni plötunnar, The Second Coming, en samband liðsmanna hefur alla tíð verið frekar viðkvæmt.

Búist er við að þriðja plata sveitarinnar komi fyrir sumarið.

150 þúsund miðar á 14 mínútum

Þrátt fyrir stuttan líftíma varð hróður sveitarinnar slíkur að mikið æði tók um sig í Bretlandi árið 2011 eftir að tilkynnt var um röð tónleika það árið. Það sýndi sig best á þeirri staðreynd að sveitin seldi hvorki meira né minna en 150 þúsund miða á tvenna útitónleika sína í Heaton Park í Manchester á aðeins 14 mínútum.

Sú endurkoma sveitarinnar var skrásett í formi heimildarmyndarinnar Stone Roses: Made of Stone en þar sést að liðsmenn skyldu í illu eftir að allt fór í háaloft eftir tónleika í Barcelona. Það er því aldrei að vita hversu löng eða stutt þetta starfstímabil verður.


Tengdar fréttir

Vel heppnuð endurkoma Stone Roses

Breska hljómsveitin The Stone Roses spilaði óvænt á sínum fyrstu tónleikum í sextán ár í bænum Warrington á Englandi fyrir skömmu. Sveitin hætti árið 1996 en í fyrra var tilkynnt um endurkomu hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×