Fyrirgefning og samstaða

Fréttablaðið Fastir pennar 29. júní 2010 09:13
Ólafur Stephensen
Ólafur Stephensen Mynd/Stefán Karlsson
Ólafur Stephensen skrifar:
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sló nýjan tón í umræðum um kirkjuna og samkynhneigða í samtali við Fréttablaðið á laugardaginn. Biskup hefur greinilega kosið að horfast í augu við þann yfirgnæfandi stuðning sem ein hjúskaparlög fyrir samkynhneigða jafnt sem gagnkynhneigða hafa meðal þjóðarinnar - og þar með á meðal þjóðkirkjufólks. Hann hefur því ákveðið að setja punkt aftan við neikvæða eða hálfvolga afstöðu kirkjunnar manna gagnvart hjónabandi samkynhneigðra og taka vel á móti samkynhneigðu fólki, sem kýs að ganga upp að altarinu og þiggja hjónavígslu af prestum þjóðkirkjunnar.

Ummæli biskups fyrir rúmum fjórum árum, um að ef hætt yrði að skilgreina hjónabandið sem samband karls og konu, yrði því kastað á sorphauginn, særðu marga. Karl Sigurbjörnsson breytir í samræmi við þann kristna boðskap sem hann kennir er hann biðst fyrirgefningar á þeim orðum sínum. Flestir samkynhneigðir hafa tekið þeirri fyrirgefningarbeiðni vel og talið hana til marks um að biskup vildi bjóða þá velkomna.

Hjónabandið er ein af grundvallarstofnunum okkar kristna samfélags. Því miður hefur hún veikzt undanfarna áratugi. Færri ganga í hjónaband en áður og skilnuðum hefur fjölgað gríðarlega. Þess vegna ber að fagna hverjum þeim, sem kýs að ganga í heilagt hjónaband og haga sambandi sínu við lífsförunaut sinn í samræmi við kristin gildi. Þetta undirstrikar biskup Íslands þegar hann segir í samtalinu við Fréttablaðið: "Nú er komin niðurstaða og skiptir miklu máli að við tökum höndum saman um að styðja við hjónabandið og fjölskyldurnar í landinu. Þetta er elsta stofnun mannlegs samfélags og það skiptir miklu máli að fólk vill festa ráð sitt og standa við sínar dýrmætustu skuldbindingar. Það er aðalmálið."

Á undanförnum árum hafa margir samkynhneigðir, vinir þeirra og fjölskyldur fjarlægzt þjóðkirkjuna vegna afstöðu hennar til hjónabandsins, jafnvel sagt sig úr kirkjunni og gengið í aðrar kirkjudeildir eða kosið að standa utan trúfélaga. Afstaða biskups ryður hindrunum í samskiptum kirkjunnar við þennan stóra hóp úr vegi. Vonandi er að hún verði líka öðrum kirkjunnar þjónum fyrirmynd, þannig að sem allra fæstir þurfi að hika við að sækja til kirkjunnar sinnar vegna afstöðu sóknarprestsins í þessum efnum.

Stofnun sem vill standa undir heitinu þjóðkirkja hlýtur að taka jafnvel á móti öllum sem vilja lifa í samræmi við kærleiksboðskap kristindómsins, sama hvernig þeir eru af Guði gerðir. Orð Karls Sigurbjörnssonar eru til marks um að kirkjan muni taka á móti öllum í nafni kærleikans. Þau efla þá samstöðu um þjóðkirkjuna, sem hér hefur lengi ríkt.



Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Fyrirgefning og samstaða