ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ NÝJAST 13:33

Merkel kennt um ófarir Þýskalands í Eurovision

FRÉTTIR

Fyrirgefðu

Fréttablaðið Bakþankar 14. júní 2011 00:01
Sr. Sigurður Árni Þórðarson.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson.
Það er nógu þungbært að gera mistök en herfilegt að þurfa líka að biðjast fyrirgefningar. Ég átti mömmu, sem gaf engan afslátt á beiðni um fyrirgefningu. Mér varð eitt sinn á að henda snjóbolta í höfuð á stelpu úr húsinu hinum megin götunnar. Hún veinaði og beygði af og rauk inn. Mamma tók á móti mér þegar ég kom heim. Hún var alvarleg í bragði og sagði: „Sestu niður, vinur." Ég setti mig í stellingar og bjóst við hinu versta. „Konan á miðhæðinni á nítján hringdi. Hún sagði að þú hefðir kastað bolta í höfuð dóttur hennar. Stúlkan er í rúminu." Ég reyndi ekki að þræta fyrir, mamma undi undanbrögðum afar illa. „Jæja vinur. Þakka þér fyrir að segja satt. Vertu nú maður, farðu og biddu stúlkuna að fyrirgefa þér."

Það var verst að verða að gera eitthvað í málinu sjálfur. Orðaskammir er hægt að afbera en erfiðara að ganga veg iðrunar. Ég velti vöngum yfir hvort ég ætti að leggja á flótta. Nei, það var víst ógerlegt því mamma var þarna í glugganum eins og alsjáandi Guðsauga og fylgdist með hverju skrefi. Undankomuleiðir voru engar.

Mamman á nítján virtist hissa þegar ég kynnti mig, en sagði: „Þú mátt koma upp." Fórnarlambið var í rúminu og ég sá ekki betur en stúlkan væri að deyja. Ég hvíslaði stamandi afsökunarbeiðni. „Hvað segir þú," var spurt. Ræsking: „Fyrirgefðu, ég ætlaði ekki að meiða þig svona mikið." „Já, allt í lagi, ég skal fyrirgefa þér." Þessi ferð varð mér til visku. Snjóboltinn kom til baka með þroska. Iðrun fellur aldrei úr gildi og er forsenda þess að okkur sé fyrirgefið sem einstaklingum og full sátt náist.

Skýrsla rannsóknarnefndar kirkjuþings sýnir að nokkrir aðilar gerðu mistök í meðferð kynferðisbrotamála. Fordómar, brengluð dómgreind og skortur á fagmennsku byrgðu mönnum sýn. Hópur af fólki var meðvirkur og skýrslan hefur sýnt hvernig hjarðhegðun getur orðið skelfileg. Hvað ættu mistaka-aðilar að gera? Reyna að skýra út mál sín? Nei, þeir hafa haft til þess tækifæri í samtölum og svörum til nefndarinnar. Nefndin hefur úrskurðað um mistök. Það er niðurstaðan. Maður ætlar ekki að meiða fólk hvorki með snjóboltum né með valdi eða tækjum stofnana. Kattaþvottar duga ekki heldur aðeins iðrunarganga, sem er alltaf erfið en þá verða menn að mönnum. Guð stendur í glugganum og blessar iðrunargöngur!

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Bakþankar 21. maí 2013 10:00

Hin ávanabindandi sigurvíma

Í sumar fagna ég því að heil átta ár eru síðan ég hóf minn feril sem knattspyrnuáhangandi. Ég er ein af þessum svokölluðu "antisportistum“ sem æfði hestaíþróttir og samkvæmisdans á yngri árum á ... Meira
Bakþankar 18. maí 2013 06:00

Játning úr aðdáendaklúbbi Jennifer

Ég veit ekki af hverju ég tók skýra afstöðu í skilnaði sem kom mér ekkert við og ég vissi ekkert um. En ég skyldi halda með Jennifer hvað sem tautaði og raulaði. Þessi Angelina virtist eitthvað tvöföl... Meira
Bakþankar 17. maí 2013 12:00

VSUAHÁÍ og hagvöxturinn

Robert Kennedy sagði eitt sinn að landsframleiðsla mældi allt nema það sem gerði lífið þess virði að lifa því. Meira
Bakþankar 16. maí 2013 07:00

Fegurð

Ég ætla að fjalla um fegurð í þessum stutta pistli. Þar sem umfjöllunarefnið er víðfeðmt mun ég takmarka mig við fegurð fótboltamarka. Ég er ekki að tala um mörkin sjálf heldur framkvæmdina að skora m... Meira
Bakþankar 15. maí 2013 09:00

Girðingarlykkjurnar

Fyrir fáeinum dögum hlustaði ég á sögu sem gerði mig bæði reiðan og dapran í senn. Hér á ég við umfjöllun Kastljóssins um hugmyndir forsvarsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar á Ísafirði um lokun hjúkruna... Meira
Bakþankar 14. maí 2013 11:30

Fjölþjóðleg flækja

Góðan dag. Er þessi trefill rétt merktur? Getur verið að hann kosti 4.000 krónur? - No. It is 400 krónur. - Nú jæja, þá ætla ég að fá hann. - Yes. 400 krónur, please. - Gjörðu svo vel. - Thank you. Ha... Meira
Bakþankar 13. maí 2013 07:00

Þroskaheft femínista- hlussa gekk inn á bar…

Tjáningarfrelsi er töff og ég vil hafa rétt á því að segja hvað sem mér sýnist hvenær sem mér sýnist en ég er líka meðvituð um að það sem ég segi hefur áhrif og því fylgir ábyrgð. Á sama tíma og ég he... Meira
Bakþankar 11. maí 2013 07:00

Uppáklædd eðla

Þegar ég leit í spegil í morgunskímunni um daginn sýndist mér ég sjá eðlu. Eitthvert skriðdýrslegt blik virtist vera í augum mér og svo virtist sem húðin hefði fengið á sig grænleitan blæ. Meira
Bakþankar 10. maí 2013 12:00

Bakarinn á Nørregade

Ég hafði gaman af dönsku í grunnskóla. Mál og menning þjóðarinnar lagðist vel í mig, mamma hlýddi mér yfir og yfirleitt fékk ég hæstu einkunnirnar í dönsku. Meira
Bakþankar 10. maí 2013 07:00

Kveðja af botninum

Vefsíðan Careercast hefur undanfarin ár lagst í ítarlega rannsókn á því hver séu bestu og verstu störf í hinum vestræna heimi. Á listanum eru 200 starfsstéttir og niðurstaðan byggir á fimm mælikvörðum... Meira
Bakþankar 08. maí 2013 07:00

Borgardama bíður eftir vori

Ég skellti mér í drifhvítum strigaskóm í vinnuna í morgun. Skildi úlpuna eftir heima og renndi ekki einu sinni upp jakkanum. Meira
Bakþankar 04. maí 2013 15:00

I approve this message

Í nýafstöðnum kosningum klæddu gamlar konur sig upp, einhverjir flögguðu, allavega einn fékk ís og enginn gerði þarfir sínar í kjörkassa. ÖSE-menn voru sáttir, herbergi var innsiglað og svo fundið út ... Meira
Bakþankar 03. maí 2013 07:00

Ys og þys út af engu

Viðbrögðin við úrslitum kosninganna á laugardag voru flest fyrirsjáanleg. Stuðningsmenn Bjartrar framtíðar og Pírata glöddust en Samfylkingarfólk og stuðningsmenn minnstu flokkanna grétu. Fögnuður Fra... Meira
Bakþankar 02. maí 2013 13:00

Umburðarlyndi

Umburðarlyndi er einn af mínum helstu kostum. Ég er umburðarlyndur maður og ég geri umburðarlyndi hátt undir höfði í skoðunum mínum til lífsins. Meira
Bakþankar 01. maí 2013 09:45

Formennirnir í lífi mínu

Nú er svo komið að í hvert sinn sem ég fer úr fötunum verður mér hugsað til Jóhönnu Sigurðardóttur, fráfarandi forsætisráðherra. Ég get útskýrt. Meira
Bakþankar 30. apríl 2013 15:00

Allir vinna, enginn tapar

Þegar ég var tiltölulega nýskriðin á þrítugsaldurinn nam ég markaðsfræði við skóla einn í Danmörku. Stuttu eftir að önnin hófst kom í ljós að áhugi minn á mörkuðum, hagkerfum og tölfræði var takmarkað... Meira
Bakþankar 29. apríl 2013 08:00

Mitt Ísland og hitt Ísland

Þegar þessi pistill er skrifaður eiga kosningar til Alþingis 2013 eftir að fara fram. Þegar þú hins vegar lest þessi orð eru þær afstaðnar og ný ríkistjórn yfirvofandi. Meira
Bakþankar 27. apríl 2013 06:00

Þingvallastjórnin

Vorið 2007 tók ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar við völdum. Ég man þá ljúfu tilfinningu sem greip mig við að sjá fréttaljósmyndir af formönnum flokkanna, þeim Geir Haarde og Ingibjörgu Só... Meira
Bakþankar 26. apríl 2013 11:00

Samið við hræfugl

Í íslenskri menningu er hrafninn heldur illa liðinn fugl. Hann er hrææta, kroppar augun úr hrútshausum, gjarnan bendlaður við sjálfan djöfulinn, feigðarboði og sálnasækir. Þetta rímar ekki við mín ein... Meira
Bakþankar 25. apríl 2013 06:00

Heimskur maður kýs

Ég kann ekki að meta sjóræningja. Í mér býr djúpstæður frumótti við sjóræningja. Mér svelgdist á kaffinu mínu þegar ég las að í framboði væri flokkur sem kennir sig við sjóræningja. Hvað næst? Hákarla... Meira
Bakþankar 24. apríl 2013 06:00

Legið á línunni

Jæja, viljið þið ekki bara fara að hætta þessu stelpur mínar? Hafið þið nokkuð fleira að segja?“ Meira
Bakþankar 22. apríl 2013 07:00

Líf útlendinga

Ég var einmitt að ljúka við æfingaferli sem leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu og núna, eftir velheppnaða frumsýningu, er ég byrjuð á íslenskunámskeiði hjá Mími símenntun. Mér finnst íslenskunám mitt hafa ... Meira
Bakþankar 20. apríl 2013 06:00

Að læka skatta

Um daginn áttum við vinur minn spjall sem hefur setið í mér. Ég talaði um nauðsyn þess að lækka skatta til að auka hagvöxt og svo ætlaði ég eflaust að segja eitthvað annað mikilvægt þar að lútandi þeg... Meira
Bakþankar 19. apríl 2013 07:00

Megavikupitsur handa öllum!

Það eru 1.512 Íslendingar í framboði til Alþingis, fleiri en nokkru sinni. Ef öllu þessu fólki yrði komið fyrir á fótboltavelli væru 69 fótboltalið á hvorum vallarhelmingi. Þetta er rosalega margt fól... Meira
Bakþankar 18. apríl 2013 06:00

Kennslustund í popúlisma

Við hvað kenna stjórnmálaflokkar sig? Til dæmis samstöðu, velferð, sjálfbærni, framfarir, réttlæti, sanngirni og lýðræði. Ég ætla ekki að kvarta yfir þessu. Verra væri ef val kjósenda stæði á milli fl... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Bakþankar / Fyrirgefðu
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000