Fyrirgef oss þeirra skuldir

Fréttablaðið Aðsendar greinar 06. september 2010 06:00
Fyrirgef oss þeirra skuldir
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:
Ökumaður sem uppvís er að því að hafa neytt áfengis ótæpilega áður en hann settist undir stýri og stofna þannig lífi og limum meðborgaranna (og sínum eigin) í stórkostlega hættu er þar með sviptur réttindum sínum til að aka bíl í tiltekinn tíma, jafnvel þótt hann hafi verið beittur harðræði við sýnatöku.

Knattspyrnumanni sem rennir sér fótskriðu inn í lærlegg mótspilara síns er snarlega vikið af velli, jafnvel þótt hann hafi aðeins „ætlað í boltann".
Ráðherra sem sannast að hefur sagt þingheimi ósatt þarf að standa upp úr ráðherrastólnum, jafnvel þótt hann hafi metið það svo að þjóðarhagsmunir bönnuðu honum að segja satt.

Maður sem mætir ekki til vinnu vikum saman er rekinn, jafnvel þótt hann segist haldinn „vinnufælni".

Læknir sem gerir sig sekan um stórkostleg afglöp á skurðarborði sem leiða til dauða er þar með sviptur lækningaleyfi sínu, jafnvel þótt hann hafi verið „illa fyrirkallaður".

Kvikmyndagerðarmaður sem býr til lélega mynd sem enginn vill sjá fær ekki oftar að spreyta sig, jafnvel þótt þetta hafi verið „innra ferðalag um angist og ótta mannsins á tímum hraða og firringar".

Skipstjóri sem siglir skipi sínu í strand í góðu veðri missir fyrir vikið skipstjórnarréttindi sín, jafnvel þótt hann færi sér til málsbóta að vera „með skerta rýmisgreind".

Hárgreiðslumeistari sem ákveður að lita hárið á fínni frú grænt mun ekki kemba hærurnar í starfi sínu, jafnvel þótt þetta hafi „bara verið smáflipp".
Leiðsögumaður sem villist með hóp af tíu ára skátum uppi á fjöllum fer ekki í fleiri slíkar ferðir, jafnvel þótt hann hafi „gleymt að skipta um batterí í áttavitanum".

Húsvörður sem kveikir í húsinu sem honum var trúað fyrir fær ekki fleiri tækifæri þar, jafnvel þótt hann sverji og sárt við leggi að þetta hafi „verið síðasta hasspípan".

Gítarleikari sem hvað eftir annað spilar vitlausa hljóma og tekur ótímabær sóló í vitlausri tóntegund og stillir auk þess alltof hátt, er þar með rekinn úr hljómsveitinni, jafnvel þótt hann segist hafa verið greindur með „tónlistarlegt tourette".

Kennari sem nennir ekki að kenna stærðfræði en tekur að einbeita sér að því að kenna nemendum sínum pottþétta aðferð við að vinna alltaf pottinn í fjárhættuspili á netinu er látinn hætta, jafnvel þótt hann hafi „margprófað þetta og það lukkast eiginlega alltaf".

Rithöfundur sem skrifar bók sem enginn kaupir og fær hroðalega dóma fær ekki fleiri slíkar útgefnar jafnvel þótt bókin hafi haft að geyma „rannsókn á þanþoli tungumálsins á annasömum vegamótum ólíkra orðræðuhátta".

Svona er það. Öll þurfum við að hlíta einhvers konar dómi fyrir störf okkar og taka afleiðingum gjörða okkar. Og verði okkur stórkostlega á í einhverjum efnum þurfum við að súpa seyðið af því - jafnvel þóttvið eigum okkur eflaust margvíslegar málsbætur. Eða það hefði maður haldið.
Af hverju er þá ekki hægt að fyrirgera rétti sínum til að stunda viðskipti hér á landi? Fólk fyrirgerir rétti sínum til að aka bíl, spila fótbolta, klippa hár, kenna… En svo virðist sem engin afglöp í viðskiptalífinu séu svo mikil að það geti orðið til þess að þyrma okkur við frekari umsvifum viðkomandi einstaklinga.

Menn sem tæmdu gömul og stöndug fyrirtæki og söfnuðu skuldum í útlöndum sem nú sliga þjóðarbúið og þar með okkur öll eru ekki heima hjá sér með hauspoka heldur komnir á stjá.

Karl Wernersson gerði Sjóvá gjaldþrota með óvenju hálfvitalegum fjárfestingum. Hann veðsetti bótasjóð félagsins, sem er lögbrot en umfram allt siðlaust. Í síðustu viku bárust fréttir af því aðhann sé orðinn framkvæmdastjóri Lyfja og heilsa. Slíkur maður á að selja okkur meðul.
Hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni fór saman óþrjótandi fjárþörf, oftrú á eigin snilld og óeðlileg ítök í bankakerfinu þar sem hann virtist geta gengið um að vild. Í vikunni var sagt frá því að honum hefði verið Gaumur gefinn: félagið fékk hjá Arion-banka eitthvað sem kallað er „kyrrstöðusamningur" og er víst ekki einu sinni til að sögn Umboðsmanns skuldara. Eftir allt sem á undan er gengið virðist hvarfla að Jóni Ásgeiri að hann geti enn staðið í viðskiptum, og það sem ótrúlegra er: áhrifamenn í bönkum láta sér það detta í hug líka.

Björgólfur Thor Björgólfsson var einn aðaleigandi Landsbankans eins og mátti sjá af fyrirgreiðslu bankans til hans. Af mörgum hroðalegum uppátækjum íslensku bankanna komu Icesave-reikningar Landsbankans sér sennilega verst fyrir íslenska þjóð. Á því ber eigandinn enga ábyrgð að eigin sögn. Í vikunni bárust svo fréttir af því að íslenskir kröfuhafar hafi að kröfu Deutsche Bank fellt niður persónulegar ábyrgðir Björgólfs Thors vegna lána hans.

Eins og ekkert hafi í skorist.


Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Fasteignir
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Fyrirgef oss þeirra skuldir